Bíllinn þinn á sér sögu.
Nú er staður
til að geyma hana á.

Þjónustubókin segir þér að bíllinn hafi verið þjónustaður. Bílapassinn skráir allt hitt — hverja viðgerð, hvern reikning, hvern varahlut. Svo þegar kemur að sölu getur þú sýnt fram á að þú hafir hugsað um hann.

Ókeypis fyrir bílaeigendur — alltaf.

Sækja á App Store

Ókeypis — engin áskrift

BílaPassinn smáforritið — Heim og Leita skjár
Sæktu forritið — ókeypis
Komið á App Store. Engin greiðsla krafist.
Skráðu bílinn þinn
Gerð, týpa, árgerð og númeraplata.
Skráðu þjónustur og viðgerðir jafnóðum
Hverja viðgerð, hvern reikning, hverja skoðun.
Opnaðu bílinn fyrir leit
Kveiktu á leit í forritinu og kaupendur finna bílinn eftir númeraplötu.

Hannað fyrir alla
sem eiga eða kaupa bíl.

Hvort sem þú ert að kaupa í fyrsta sinn, selur reglulega eða ert söluaðili — BílaPassinn skapar virði í hverju skrefi.

Bílaeigendur

Byggðu upp orðspor bílsins

Byrjaðu að skrá strax. Þegar þú selur muntu hafa skjalfesta sögu bílsins.

  • Öll þjónusta og allar viðgerðir á einum stað
  • Reikningar og skjöl alltaf við höndina
  • Gögnin þín haldast persónuleg þar til þú velur að deila
  • Gerðu bílinn leitanlegan þegar þú selur
Kaupendur

Veistu hvað þú ert að kaupa?

Sláðu inn númeraplötu í smáforritinu eða á bilapassinn.is og fáðu fulla skjalfesta þjónustusögu bílsins. Engin óvissa — bara staðreyndir.

  • Sjáðu allar þjónustur og viðgerðir með dagssetningum
  • Staðfestu reikninga og skjöl
  • Taktu upplýstar og öruggar ákvarðanir
  • Haltu sögunni áfram eftir kaup
Bílasalar

Einfaldaðu söluferlið

Vertu með sögu bílsins á svörtu og hvítu. Bílar með BílaPassa seljast með minni áhættu.

  • Sparaðu tíma við að staðfesta sögu bíls
  • Byggðu upp traust kaupenda frá byrjun
  • Aðgreindu vörulagerinn þinn
  • Vertu staðfestur samstarfsaðili
Væntanlegt
Þjónustuverkstæði

Vinnan þín, vel skjalfest

Þegar viðskiptavinir skrá þjónustu sína hjá þér verður vinna verkstæðisins hluti af traustu og varanlegu skjali.

  • Staðfestar færslur þínar hafa meira vægi
  • Styrktu sambandið við viðskiptavini
  • Vertu hluti af því að byggja landsstaðal
  • Engin flókin samþætting nauðsynleg
Einar Þór Kjartansson, stofnandi BílaPassans

Búið til út frá raunverulegri upplifun
á íslenska bílamarkaðinum.

Stofnandi BílaPassans — Einar Þór Kjartansson

Ég er Keflvíkingur en bý í Miami um þessar mundir, með bakgrunn í þrívíddar- og hreyfhönnun.

BílaPassinn varð til út frá persónulegri reynslu — að kaupa bíl á Íslandi án upplýsinga um raunverulega sögu hans og sitja uppi með nýkeyptan og ónýtan bíl. Ég veit að þetta vandamál er raunverulegt vegna þess að ég upplifði það sjálfur.

Ég er að þróa þetta vegna þess að Ísland á skilið betri innviði fyrir eitthvað jafn mikilvægt og bílaeign. Ég trúi á að byrja smátt, vera heiðarlegur um stöðuna og byggja eitthvað sem endist.

Ef þú vilt spjalla, um vöruna, um samstarf eða bara til að deila þinni eigin reynslu af því að kaupa eða selja bíl á Íslandi — þá langar mig að heyra frá þér.